Sparkað í rassa
    <description>Sparkað í rassa</description>
Kaldhæðni
      <description>Nú er ég búin að stofna nýtt blogg af því að þetta blogg var aldrei að virka en nei, þá virkar nýja bloggið ekki því það þykist vera að vinna eitthvað í því. Ég kemst inn á Eyrúnarblogg en ekki mitt. Aðeins of undarlegt til að geta verið tilviljun verð ég að segja.</description>
The end of an era
      <description>Nú er nýja síðan mín orðin boðleg öðru fólki en mér.</description>
Fínerí
      <description>Þá er heimilið aldeilis orðið fínt, gardínur komnar upp og þær eru smá bleikar sem skemmir nú ekki fyrir. Lilja Rut skólasystir mín og nágranni með meiru ákvað að spara skápapláss og lána mér gardínur. Þetta er svo ofsalega fallegt að mig langar bara að eyða nóttinni í að horfa á þetta, og vera nakin inni hjá mér. Nú get ég eytt óhóflegum tíma í að vera nakin, hvenær sem tækifæri gefst. Get ekki beðið eftir að fara í sturtu á morgun og þurfa ekki að vera með handklæði á mér þegar ég fer út af klósettinu, geta klætt mig og skipt um föt í meira en eins metra fjarlægð frá klósettskálinni og bara... (more)</description>
Alltaf er hún Eva að senda mér eitthvað sniðugt
      <description>The Silent Treatment
A man and his wife were having some problems at home and were giving each
other the silent treatment.  Suddenly, the man realized that the next day,
he would need his wife to wake him at 5:00 AM for an early morning
business flight.
Not wanting to be the first to break the silence (and LOSE), he wrote on a
piece of paper,  "Please wake me at 5:00 AM." He left it where he knew she
would find it.
The next morning, the man woke up, only to discover it was 9:00 AM and he
had missed his flight.  Furious, he was about to go and see why his wife
hadn't wakened him, when he... (more)</description>
Mælirinn
      <description>fer alveg að verða fullur. Um leið og ég finn upp e-ð sniðugt nafn á nýtt blogg þá mun ég stofna það. Er meira að segja komin svo langt að ég fór inn á bloggar.is áðan til að skoða aðeins. Hugsa að það kerfi verði fyrir valinu. Er orðin mjög þreytt á að geta ekki skoðað bloggið mitt eða að nýjustu eitt, tvö eða þrjú blogg sjáist ekki í marga daga. Einhverjar hugmyndir að nýju nafni fyrir bloggið?
Það er margt sem lætur mér finnast ég vera að eldast ansi hratt. Ég er flutt að heiman, er í háskóla og fer sjálf í Bónus. Það sem mér finnst þó vera mest ógnvekjandi - eða svona því sem næst - er... (more)</description>
Hið óþekkta
      <description>Ég held að það geti verið að ég hafi fundið pöddu á heimili mínu í fyrsta skipti. Jú það hafa nokkrar litlar sakleysislegar flugur ratað hingað inn af rælni en þetta var e-ð óargadýr. Mjög lítið óargadýr, en af því ég veit ekki hvað þetta var þá kýs ég að kalla þetta öllum illum nöfnum. Þetta var lítið, rautt, virtist liðskipt og með fálmara. Nema þetta hafi verið útlitslega óheppið kusk sem endaði veru sína á gólfinu með því að festast á klósettpappírsrúlluna við rúmið mitt (sem ég nota til að snýta mér og þurrka tár þegar ég horfi á Grey´s uppi í rúmi - bara svona til að forðast... (more)</description>
Óhljóð
      <description>Ég hef grun um að nágranni minn sem deyfir ekki hljóðin í rúminu sínu við að öllum líkindum ákveðnar athafnir geri það viljandi. Hann/hún/þau vita kannski ekki að mig langar ekkert til að heyra í honum/henni/þeim á svona stundum. Ég get huggað mig við það að þetta virðist ekkert sérlega taktfast. Þetta er örugglega ömurlegt kynlíf sem verið er að stunda í nágrenni mínu.</description>
Verjur
      <description>Í augnablikinu og fram á morgun verða 12 sinnum 20 smokkar fyrir útidyrahurðinni minni. Þannig er mál með vexti að það verða 5 Ástráðsfyrirlestrar í einu í Borgarholtsskóla og ég er með kassana sem við þurfum en ég þori ekki að geyma smokkana úti í bíl ef það skyldi frjósa í nótt. Smokkar mega ekki hitna of mikið og væntanlega þá heldur ekki frjósa - eða hvað? Vil ekki að það verði flóðbylgja af unglingaþungunum af því smokkarnir rifnuðu!
Horfði á Oprah í gær og jiminn hvað þetta var hrikalegur þáttur. Þarna var hún að spássera um Auswitsch með manni sem var haldið þar, Elie Wiesel fyrir þau... (more)</description>
Innri kynfæri kvenna
      <description>eða öllu heldur myndir af þeim hanga á fánum á Laugaveginum. Getur einhver frætt mig um af hverju? Á sama tíma og ég sá þetta fyrst var verið að stofna samtök kvenna með legslímuflakk en ég efa þetta sé í tilefni af því.</description>
Heimilisstörfin
      <description>Í gær þíddi ég ísskápinn minn. Ég vildi að ég gæti sagt að ég hefði planað það, hugsað ,,Hm, nú er kominn tími til að ég þrífi ísskápinn minn" en þannig var það ekki. Ég fiktaði í tökkunum á ísskápnum í gærmorgun til að reyna að kæla hann meira - mjólkin farin að skemmtast óvenju snemma - en svo virðist sem ég hafi drepið hann tímabundið. Þegar ég kom heim í gærkvöldi var örlítið stöðuvatn framan við ísskápinn sem þýddi að ég þurfti að þrífa það ásamt ísskápnum á mettíma því ég átti von á Jóhanni og Jóni Ragnari. Þeir miskunnuðu sig yfir mig og buðust til að elda fyrir mig gegn því að ég... (more)</description>