|
Þá er heimilið aldeilis orðið fínt, gardínur komnar upp og þær eru smá bleikar sem skemmir nú ekki fyrir. Lilja Rut skólasystir mín og nágranni með meiru ákvað að spara skápapláss og lána mér gardínur. Þetta er svo ofsalega fallegt að mig langar bara að eyða nóttinni í að horfa á þetta, og vera nakin inni hjá mér. Nú get ég eytt óhóflegum tíma í að vera nakin, hvenær sem tækifæri gefst. Get ekki beðið eftir að fara í sturtu á morgun og þurfa ekki að vera með handklæði á mér þegar ég fer út af klósettinu, geta klætt mig og skipt um föt í meira en eins metra fjarlægð frá klósettskálinni og bara almennt gert ósiðlega hluti hér inni án þess að nokkur geti fylgst með mér úr fjarlægð (ja eða nálægð af svölunum). -Get nú ekki sagt að ég geri mikið af ósiðlegum hlutum kannski, fer alveg eftir skilgreiningunni á ósiðleika. -Nema auðvitað að ég sé eins og Truman í Truman show. Stundum velti ég því fyrir mér hvað það væri ofsalega óspennandi þáttur ef ég væri Dagbjört í The Dagbjört show. Allt í lagi, það kemur alveg fyrir að ég lifi sápuóperu - skástrik- kvikmyndalífi en ég held það gerist of sjaldan til að þátturinn minn yrði spennandi. Ef það væri til The Dagbjört Show væri mjög gott að vita það, þá myndi ég gera meira í því að skemmta áhorfendum með dansi og söng, kjánalegum aðstæðum - eða nei annars ég upplifi sennilega alveg nóg af þeim - og bara almennum skemmtilegheitum. Þátturinn þar sem ég var engill í myndatöku hefði þá sennilega verið einn sá neyðarlegurgamanþáttur-legasti. Hver væri uppáhaldsþáttur ykkar í The Dagbjört Show svona af því sem þið hafið séð eða heyrt? |
| Halldóra November 14, 2006 07:35 PM PST En hugsaðu þér ef það yrði gerð heil sería af 24 sem byggðist á sólarhring í lífi þínu! Ég hugsa að áhorfendur yrðu sko ekki fyrir vonbrigðum með það! Tvímælalaust Emmy verðlauna þættir!!! | ||
| Dagbjört November 12, 2006 02:04 PM PST Hehe, gaman að skemmtilegasti þátturinn skuli vera kúkaatriði. Kýs að halda að það segi meira um ykkur en mig. | ||
| óska November 11, 2006 02:38 PM PST Af því að það má biðja um umhugsunarfrest ætla ég að hugsa málið um hvaða þáttur mér finnst bestur! Hlakka annars til að koma og vera nakin hjá þér!! JEI | ||
| Kristín November 11, 2006 01:25 PM PST Ég verð að vera sammála með Kaupmannahöfn, nóg hefur maður heyrt um þá ferð :). Annars eru bara svo óteljandi skemmtilegir hlutir sem gerast í kringum þig og sem þú átt þátt í sjálf. Erfitt að velja. Ég veit samt að uppáhaldsmyndin mín af þér er ekki til lengur: Dagbjört + nef + lítil vifta ;)! | ||
| Lára November 10, 2006 11:35 PM PST Hann gerist í Kaupmannahöfn. | ||
| Johanna November 10, 2006 10:23 AM PST Sko það sem stendur upp úr akkurat núna er þátturinn í kaupmannahöfn fyrir bæjarferðina:) Ekki það að það séu ekki óteljandi góðir þættir, þetta er bara svona það síðasta eftirminnilegasta sem ég sá. | ||
| Leave a Comment: |