|
fer alveg að verða fullur. Um leið og ég finn upp e-ð sniðugt nafn á nýtt blogg þá mun ég stofna það. Er meira að segja komin svo langt að ég fór inn á bloggar.is áðan til að skoða aðeins. Hugsa að það kerfi verði fyrir valinu. Er orðin mjög þreytt á að geta ekki skoðað bloggið mitt eða að nýjustu eitt, tvö eða þrjú blogg sjáist ekki í marga daga. Einhverjar hugmyndir að nýju nafni fyrir bloggið? Það er margt sem lætur mér finnast ég vera að eldast ansi hratt. Ég er flutt að heiman, er í háskóla og fer sjálf í Bónus. Það sem mér finnst þó vera mest ógnvekjandi - eða svona því sem næst - er að ég er komin á þann aldur að menn sem ég hrífst af eru nánast allir með hring (eða að ég gleymi hvað ég er gömul og þeir eru óviðeigandi ungir!). Litla hringi, stóra hringi, bara allir með hring. Var ég að missa af einhverju? Var einhver sérstakur tími til að panta sér góðan og sætan kærasta og það gleymdist að láta mig vita? Ég vil þá vinsamlegast fá að vita af næsta pöntunartíma. Ætli þetta sé eins og að panta tíma hjá vinsælum læknum? Þá krefst ég þess að ég fái að vita af deginum þegar byrjað verður að bóka fyrir næsta mánuð. |
| Eyrún November 9, 2006 11:30 PM PST Dabba.bloggar.is er allavegana upptekið það get ég sagt ykkur. Annars finnst mér daybright.bloggar.is alveg tilvalið svo lengi sem bloggið heitir áfram sparkað í rassa. Ástæðan fyrir því að Valur er svona fúll útí þig er að einu sinni þegar hann svaf fram á borðið sitt í 5 mínútna frímó þá sendirðu mér sms og svo heppilega vildi til að síminn minn var nær alveg upp við eyrað á honum. skemmtilegt nokk. | ||
| Helga Dröfn November 9, 2006 09:41 PM PST það fyrsta sem ég hugsaði var daybright... greinilega sama og fleiri :) Kemur eitthvað annað til greina? Já þetta vandamál virðist vera ríkjandi á okkar aldri - verð að viðurkenna að ég er svakalega fegin að ég er ekki "á markaðinum" HAHA þetta er líka ríkjandi meðal karlmanna á okkar aldri +- 5 ár | ||
| Dagbjört November 9, 2006 04:29 PM PST "daybright" eða "daybright rokkar"? :) Þú heldur að ég eigi te? Bý því miður ekki svo vel en ég á margt annað góðgæti get ég sagt þér. Gæti keypt kókómjólk fyrir komu þína ;) Læt ykkur vita þegar/ef ég fæ upplýsingar um pöntunartíma. Er farin að hallast að daybright.bloggar.is og að bloggið muni áfram heita sparkað í rassa en ég hef ennþá tíma til að ákveða þetta. | ||
| Eva November 9, 2006 02:48 PM PST Þessi ákvörðun þín er frábær. Ég kemst inn á þetta blogg þitt að meðaltali svona einu sinni í viku og það er klárlega ekki nóg!!! Hvernig hljómar sparkadirassa.bloggar.is?? Kannast við þetta hringavandamál. Það gleymdist líka að láta mig vita sko! | ||
| Eyrún November 9, 2006 01:29 PM PST Ha, skemmtilegra en sparkað í rassa? Já, og ef þú kemst að deginum þá læturu mig vita. Amen. | ||
| Lára klára November 9, 2006 08:47 AM PST Daybright rokkar... ;) Ég bíð spennt eftir teboði! | ||
| Leave a Comment: |