Entry: Heimilisstörfin Wednesday, November 01, 2006



Í gær þíddi ég ísskápinn minn. Ég vildi að ég gæti sagt að ég hefði planað það, hugsað ,,Hm, nú er kominn tími til að ég þrífi ísskápinn minn" en þannig var það ekki. Ég fiktaði í tökkunum á ísskápnum í gærmorgun til að reyna að kæla hann meira - mjólkin farin að skemmtast óvenju snemma - en svo virðist sem ég hafi drepið hann tímabundið. Þegar ég kom heim í gærkvöldi var örlítið stöðuvatn framan við ísskápinn sem þýddi að ég þurfti að þrífa það ásamt ísskápnum á mettíma því ég átti von á Jóhanni og Jóni Ragnari. Þeir miskunnuðu sig yfir mig og buðust til að elda fyrir mig gegn því að ég þrifi. Ekki jafnrómantískt og það hljómar, þá vantaði bara stað til að borða á. En engu að síður fékk ég dýrindis fisk í gær og ágætis félagsskap yfir máltíðinni.

Er að horfa á Sex and the City þessa dagana. Ásdís Eir ber ábyrgð á því hvað ég fer alltaf seint að sofa núna. Sería eitt byrjaði ekkert sérlega vel en þetta er svona að batna. Vissi ekki að Big kæmi svona snemma fram, er fyrst núna að skilja hversu myndó hann er.

   8 comments

Ásdís Eir
November 3, 2006   12:50 PM PST
 
Fokk. Þíða?
Ásdís Eir
November 3, 2006   12:48 PM PST
 
Ég nenni aldrei að afþýða frystihólfið mitt, það verður allt svo blautt og leiðinlegt. En um daginn var svo komið að ég gat ekki sett neitt inn í hólfið því klakinn var orðinn svo stór og mikill og fyllti uppí... svo ég notaði hamar og skrúfjárn og hjó klakann í burtu. Daddarrrraaa!! Miklu skemmtilegra en að afþýða.
Dagbjört
November 2, 2006   11:43 PM PST
 
Ég einmitt hálfskammast mín fyrir það hvað ég lét líða langan tíma frá því ég flutti inn þar til ég þreif ísskápinn, og það var ekki einu sinni viljandi! Þreif hann nefnilega ekki um leið og ég flutti inn, sóðinn ég.
Aiden er algjörlega minn maður, miklu frekar en Big. Er eiginlega orðin afhuga honum aftur.
Halldóra Kristín
November 2, 2006   10:42 AM PST
 
Humm þeir eru klárlega báðir mjög hot, Big hefur þennan sexy older man þokka og Aiden er svona meira ungur og arti....
Hildigunnur
November 1, 2006   04:37 PM PST
 
Aiden?!?! No no no! Aðeins of "mushi-mushi" fyrir minn smekk. Big's the man!
Þegar ég las "Í gær þíddi ég ísskápinn minn" hugsaði ég: Vá hvað Dagbjört er dugleg, nýflutt inn og strax byrjuð að hreingera!!! Kannski ekki alveg....
Eyrún
November 1, 2006   10:20 AM PST
 
Ég er líka að horfa á Sex and the City núna!!!!!
Sleppti reyndar fyrstu seríu en er nýbyrjuð á fjórðu seríu!!!
Dagbjört
November 1, 2006   01:01 AM PST
 
Big getur engan veginn keppt við Aidan en mér fannst Big bara krípí fyrst. Núna skil ég alveg að hún hafi hrifist af honum. Ekkert mikið meira en það samt.
Eva
November 1, 2006   12:58 AM PST
 
jibbý... ég komst á síðuna þína... skil þetta ekki....en já... ég er meiri Aiden manneskja en mr.Big.... ég allavegana skil ekki ennþá að hann sé myndó... það kemur kannski einhvern tímann :)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments