|
|
 |
Monday, October 30, 2006
Þessi brandari er í boði Evu. Var dálítið lengi að lesa hann því ég þurfti svo mikið að lifa mig inn í hreiminn hjá þeim, enda er það líka mun skemmtilegri lesning. Veit ekki hvort maður þarf að vita mikið um hátterni Ítala til að finnast þetta fyndið, þið verðið bara að dæma um það.
Five Germans in an Audi Quattro arrive at the Italian border. An Italian police officer stops them and says:
"Itsa illegala to putta five-a people in a Quattro!"
"Vot do you mean, it's illegal?" the German driver asks.
"Quattro means four!" the policeman answers.
"Quattro iz just ze name of ze fokken automobile" the German shouts ..."Look at ze dam paperz: Ze car is dezigned to carry 5 people!"
"You canta pulla thata one on me!" says the Italian policeman. "Quattro meansa four. You havea five-a people ina your car and you are therefore breaking the law!"
The German driver gets mad and shouts "You ideeiot! Call ze zupervizor over!
Schnell! I vant to spik to zumvun viz more intelligence!!!"
"Sorry" the Italian says, "He canta comea . He'sa buzy with a two guys in a Fiat Uno."
Posted at 10:39 by dagbjort
Permalink
komst ég í vísindaferðina á föstudaginn. Dýrindis veitingar sem við fengum þarna í Straumsvíkinni og svo var það partý hjá Hörpu á 3. ári þar sem var farið í Singstar eins og í öllum eðal partýum (nema þeim sem er farið í Buzz) og rætt um getnaðarvarnir og blæðingar. Þetta var ekki stelpupartý fyrir ekki neitt.
Var beðin að koma að vinna á laugardaginn og ég auðvitað hlýddi því kalli. Það var nánast ekki neitt að gera, ótrúlegt hvað konur eru eitthvað tregar til að eignast börn þessa dagana. Sem þýðir að ég var bara að slæpast í vinnunni. Reyndi að finna mér eitthvað að gera en mestan tímann var ég að horfa á sjónvarpið, lesa/skoða bækur og blöð og svo spjalla við hina.
Held ég neyðist til að pína mig til að fara að læra í þessari viku. Gengur ekki lengur að hangsa svona, ekki nema nokkrar vikur í prófin. Hræðileg staðreynd.
Posted at 00:13 by dagbjort
Permalink
Friday, October 27, 2006
Þá er ég búin að klára fyrsta giggið mitt sem fyrirsæta. HA?! segið þið auðvitað öll upphátt því að það er nú ekki alveg minn tebolli að vera fyrirsæta en þetta gerðist nú samt. Vinkonu vinar vinkonu minnar vantaði módel fyrir lokaprófið í förðunarskóla og þar sem að ég er ljóshærð og með stóra neðri vör var ég kjörin í þetta. Þurfti ekki að uppfylla mörg skilyrði :) Ég sem sagt var máluð sem engill (verkefnið var jólakort), öll úti í glimmeri, krullur í hárinu og englahársgeislabaugur ofan á því. Ómar sagði samt að ég liti út eins og djöfullinn... Svo þegar var búið að gera mig voðalega fína var komið að myndatökunni sem ég kveið hvað mest fyrir. Þegar ég var búin að gera hin ýmsustu svipbrigði var ég beðin um að brosa aðeins og þá var e-ð fyndið sagt sem ég fór að hlæja að og þá byrjaði ljósmyndarinn að segja allar hallærislegustu línurnar sem maður hefur heyrt í bíómyndum. ,,Meira-meira-já ekki hætta-meira-meira-elskaðu myndavélina-meira" voru orð sem komu í langri bunu og að sjálfsögðu fékk ég stjórnlaust hláturskast! En ekki hvað? Og svo fannst þeim þær myndir bestar, þar sem ég var hvað mest afmynduð af hlátri. Skrítið þetta fallega fólk...
Posted at 01:10 by dagbjort
Permalink
Thursday, October 26, 2006
Gaman að vera líkt við módel. Sérstaklega þegar það er vegna þess að við erum báðar ljóshærðar og með stóra neðri vör! Ég er augljóslega febjúlös.
Posted at 00:24 by dagbjort
Permalink
Wednesday, October 25, 2006
How to look good naked er að byrja. Mæli með þessum þáttum við alla. Er öðruvísi þáttur um útlit og ég dýrka gaurinn sem sér um þetta! Nauðsynleg viðbót í þessa útlitsgeðveiki sem tröllríður öllu núna. Svo er það L-Word sem ég ætla að reyna að horfa á með opnum hug í kvöld. Brokeback mountain í gær, L-Word í dag.
Posted at 23:07 by dagbjort
Permalink
Ég veit að það er ekki gott að vera bitur en í þetta skiptið ræð ég ekki við það. Búin að undirbúa mig undir baráttuna í því að skrá mig í vísindaferð í allan dag. Ég vissi alveg að þetta yrði erfitt þar sem að strákahluti ferðarinnar fylltist á örfáum sekúndum í gærkvöldi en nei, þrátt fyrir að ég hafi skráð mig UM LEIÐ og ferðin kom upp á síðuna þá segir tölvan að viðbragðstími minn hafi verið 5 sekúndur! 5 sekúndur gott fólk, ég hefði getað náð því sofandi! Þá er bara að bíða og sjá og ef ekkert gengur þá beita brögðum til að þessar 6 á undan mér detti út...
Þess má geta (og er æskilegt að geta fyrst ég er að æsa mig svona mikið) að þetta er stelpu og strákakvöld þar sem stelpurnar fara í vísindaferð í Alcan en strákarnir fara í Toyota, kynjaskipt partý á eftir og síðan hittast allir í strákapartýinu áður en bærinn tekur við. Allir verða að klæða sig uppá og vera með sólgleraugu, var búin að ákveða sólgleraugun og allt! Þetta er svo sorglegt... Miðað við að fara ekki það er að segja.
Posted at 20:12 by dagbjort
Permalink
Nú verð ég bráðum ein af þeim stelpum sem nota tískupilluna. Spennandi að verða ein af þessum svölu stelpum sem taka Yasmin. Ennþá skemmtilegra ef hún virkar á þann hátt sem að ég vil að hún virki, sumsé að þá hætti ég að fá unglingabólur. Frekar þreytt að fá unglingabólur svona á gamals aldri.
Ég vildi að þessar fréttir af nauðgununum í miðbænum séu lygi til að stelpur passi sig betur en svo er væntanlega ekki. Mig langar ekki til að svona geti gerst en maður fær víst sjaldan það sem maður vill í lífinu. Eins og sennilega flestir hef ég séð og heyrt fréttirnar eftir hverja helgi, að það hafi verið ráðist á þennan og hinn á skemmtistöðum bæjarins og allt of oft eru sagðar fréttir af því að stelpum hafi verið nauðgað. Þær hafa samt aldrei haft eins mikil áhrif á mig og núna, ekki nóg með að stelpu var nauðgað bakvið MR, stað sem ég geymi bara góðar minningar frá (eða því sem næst) heldur var stelpu líka nauðgað við Þjóðleikhúsið. Þegar ég fer í bæinn á ég oft leið um þessa staði bæði ein og með öðrum. Sérstaklega ef ég fer á bíl þá legg ég oftast við MR og stundum bakvið Þjóðleikhúsið. Meira en nokkurn tímann áður upplifi ég þessa vondu ,,Þetta hefði getað verið ég" - tilfinningu. Ég ætla að læra af þessu, forðast það eins og heitan eldinn að rölta ein heim, þiggja ekki far hjá ókunnugum (sem ég hef nú reyndar aldrei gert) og gera allt sem ég get til að gefa ekki færi á mér. Því þó að þetta sé aldrei fórnarlambinu að kenna er samt hægt að gera ýmislegt til að forðast kjöraðstæður fyrir gerendur.
Gaman að blogga oft á dag, ekki jafngaman að það er af því að ég er veik. En það stendur allt til bóta.
Posted at 00:28 by dagbjort
Permalink
Tuesday, October 24, 2006
Hvernig er það, hefur fólk ekkert betra að gera en að þykjast vera annt um skepnur sem eru í plati á dýríútrýmingarhættu listanum? Hvað með öll hin dýrin sem er farið svo miklu verr með, látin húka í húsi alla sína ævi þar til miskunnsamur maður með byssu eða eggvopn endar ömurlegt líf þeirra. Hvalir fá þó að lifa sínu lífi þar til þeim er kippt upp úr hafinu. Vona bara að ráðamenn þessa lands hafi vit á því að halda þessu til streitu enda er ekki hægt að taka bara úr einum/fáum hlekkjum fæðukeðjunnar eins og við höfum gert svo lengi. Vonandi finnur fólkið sér eitthvað annað að tala um fljótlega eins og sveltandi börn, drepandi einkennisklædda menn, peningasvelti heilbrigðisstofnana og fleiri skemmtilega hluti.
Posted at 16:06 by dagbjort
Permalink
Monday, October 23, 2006
Ég er rétt að jafna mig á því að horfa á She´s the Man. Hún var hrikalega neyðarleg og Halldóra horfði á kannski helminginn af henni, annars var hún með hægri höndina kyrfilega festa framan á andlitið til að sjá ekki hryllilega neyðarlegu atriðin sem komu í bunum. Þeir sem sakna Djúpu Laugarinnar ættu að leigja þessa mynd, aulahrollurinn er slíkur og þvílíkur.
Ég er orðin dálítið spennt að sjá Mýrina, eflaust ágætis mynd og gaman að vera búin að lesa bókina áður en maður fer. Var ekki búin að lesa Dís áður en ég fór á hana og fannst það skemma dálítið fyrir.
Er byrjuð að vinna aðeins á fæðingadeildinni, var aðfaranótt laugardagsins og það var brjálað að gera á tímabili. Meira að segja það mikið að ég var látin í ljósmæðraleik í dágóðan tíma og það gekk svona líka vel. Vona bara að ég fái fleiri vaktir áður en ég fer að læra af krafti (fjúff, hvenær ætli það gerist?) svo ég eigi kanilsykur í grautinn um jólin.
Við fórum 5 stykki stelpur í sumarbústað um helgina. Fengum lánaðan sumarbústað sem móðursystir Eyrúnar á en við fengum hann líka lánaðan fyrir 2 árum í saumósumóferð. Það merkilegasta í ferðinni held ég að hafi hiklaust verið Twister. Þetta spil er þvílík snilld, synd að ég hafi ekki uppgötvað það fyrr. Einhver brjáluð manneskja stakk upp á nöktu gerðinni af spilinu en við vorum líklega allar fegnar þegar upp var staðið að hafa ekki samþykkt það, annars hefði þetta endað með ósköpum (sköp=píka, ósköp=rassgat).
Posted at 23:53 by dagbjort
Permalink
Bætti við 3 nýjum linkum. Hefði sennilega dregið það mikið lengur ef ekki hefði verið fyrir sjúklega fyndnu bloggin hennar Gígju undanfarið, kúkabloggið ógurlega sem meira að segja er tileinkað mér ásamt manneskju sem ég þekki ekki neitt en þarf augljóslega að hitta og svo er MR-nörda blogg þarna sem er kannski bara fyndið fyrir þá sem voru þarna - þið verðið að dæma um það.
Posted at 01:28 by dagbjort
Permalink
|