<< November 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Thursday, November 09, 2006
Fínerí

Þá er heimilið aldeilis orðið fínt, gardínur komnar upp og þær eru smá bleikar sem skemmir nú ekki fyrir. Lilja Rut skólasystir mín og nágranni með meiru ákvað að spara skápapláss og lána mér gardínur. Þetta er svo ofsalega fallegt að mig langar bara að eyða nóttinni í að horfa á þetta, og vera nakin inni hjá mér. Nú get ég eytt óhóflegum tíma í að vera nakin, hvenær sem tækifæri gefst. Get ekki beðið eftir að fara í sturtu á morgun og þurfa ekki að vera með handklæði á mér þegar ég fer út af klósettinu, geta klætt mig og skipt um föt í meira en eins metra fjarlægð frá klósettskálinni og bara almennt gert ósiðlega hluti hér inni án þess að nokkur geti fylgst með mér úr fjarlægð (ja eða nálægð af svölunum). -Get nú ekki sagt að ég geri mikið af ósiðlegum hlutum kannski, fer alveg eftir skilgreiningunni á ósiðleika. -Nema auðvitað að ég sé eins og Truman í Truman show. Stundum velti ég því fyrir mér hvað það væri ofsalega óspennandi þáttur ef ég væri Dagbjört í The Dagbjört show. Allt í lagi, það kemur alveg fyrir að ég lifi sápuóperu - skástrik- kvikmyndalífi en ég held það gerist of sjaldan til að þátturinn minn yrði spennandi. Ef það væri til The Dagbjört Show væri mjög gott að vita það, þá myndi ég gera meira í því að skemmta áhorfendum með dansi og söng, kjánalegum aðstæðum - eða nei annars ég upplifi sennilega alveg nóg af þeim - og bara almennum skemmtilegheitum. Þátturinn þar sem ég var engill í myndatöku hefði þá sennilega verið einn sá neyðarlegurgamanþáttur-legasti. Hver væri uppáhaldsþáttur ykkar í The Dagbjört Show svona af því sem þið hafið séð eða heyrt?


Posted at 23:32 by dagbjort

Halldóra
November 14, 2006   07:35 PM PST
 
En hugsaðu þér ef það yrði gerð heil sería af 24 sem byggðist á sólarhring í lífi þínu! Ég hugsa að áhorfendur yrðu sko ekki fyrir vonbrigðum með það!
Tvímælalaust Emmy verðlauna þættir!!!
Dagbjört
November 12, 2006   02:04 PM PST
 
Hehe, gaman að skemmtilegasti þátturinn skuli vera kúkaatriði. Kýs að halda að það segi meira um ykkur en mig.
óska
November 11, 2006   02:38 PM PST
 
Af því að það má biðja um umhugsunarfrest ætla ég að hugsa málið um hvaða þáttur mér finnst bestur!

Hlakka annars til að koma og vera nakin hjá þér!! JEI
Kristín
November 11, 2006   01:25 PM PST
 
Ég verð að vera sammála með Kaupmannahöfn, nóg hefur maður heyrt um þá ferð :). Annars eru bara svo óteljandi skemmtilegir hlutir sem gerast í kringum þig og sem þú átt þátt í sjálf. Erfitt að velja. Ég veit samt að uppáhaldsmyndin mín af þér er ekki til lengur: Dagbjört + nef + lítil vifta ;)!
Lára
November 10, 2006   11:35 PM PST
 
Hann gerist í Kaupmannahöfn.
Johanna
November 10, 2006   10:23 AM PST
 
Sko það sem stendur upp úr akkurat núna er þátturinn í kaupmannahöfn fyrir bæjarferðina:) Ekki það að það séu ekki óteljandi góðir þættir, þetta er bara svona það síðasta eftirminnilegasta sem ég sá.
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry