fer alveg að verða fullur. Um leið og ég finn upp e-ð sniðugt nafn á nýtt blogg þá mun ég stofna það. Er meira að segja komin svo langt að ég fór inn á bloggar.is áðan til að skoða aðeins. Hugsa að það kerfi verði fyrir valinu. Er orðin mjög þreytt á að geta ekki skoðað bloggið mitt eða að nýjustu eitt, tvö eða þrjú blogg sjáist ekki í marga daga. Einhverjar hugmyndir að nýju nafni fyrir bloggið?
Það er margt sem lætur mér finnast ég vera að eldast ansi hratt. Ég er flutt að heiman, er í háskóla og fer sjálf í Bónus. Það sem mér finnst þó vera mest ógnvekjandi - eða svona því sem næst - er að ég er komin á þann aldur að menn sem ég hrífst af eru nánast allir með hring (eða að ég gleymi hvað ég er gömul og þeir eru óviðeigandi ungir!). Litla hringi, stóra hringi, bara allir með hring. Var ég að missa af einhverju? Var einhver sérstakur tími til að panta sér góðan og sætan kærasta og það gleymdist að láta mig vita? Ég vil þá vinsamlegast fá að vita af næsta pöntunartíma. Ætli þetta sé eins og að panta tíma hjá vinsælum læknum? Þá krefst ég þess að ég fái að vita af deginum þegar byrjað verður að bóka fyrir næsta mánuð.