Í augnablikinu og fram á morgun verða 12 sinnum 20 smokkar fyrir útidyrahurðinni minni. Þannig er mál með vexti að það verða 5 Ástráðsfyrirlestrar í einu í Borgarholtsskóla og ég er með kassana sem við þurfum en ég þori ekki að geyma smokkana úti í bíl ef það skyldi frjósa í nótt. Smokkar mega ekki hitna of mikið og væntanlega þá heldur ekki frjósa - eða hvað? Vil ekki að það verði flóðbylgja af unglingaþungunum af því smokkarnir rifnuðu!
Horfði á Oprah í gær og jiminn hvað þetta var hrikalegur þáttur. Þarna var hún að spássera um Auswitsch með manni sem var haldið þar, Elie Wiesel fyrir þau ykkar sem þekkja hann. Gat haldið grátinum í mér þó nokkuð lengi en þegar voru sýndar myndir af börnum og öllu hárinu sem var rakað af öllum gat ég ekki annað en grátið. Það er svo ótrúlegt að það er til fólk sem heldur því fram að þetta hafi aldrei gerst. Ætli það trúi því í alvörunni eða segi það bara eins og fólk sem heldur stundum fram einhverju bara til að æsa mann upp eða til vera á móti skoðunum annarra?
Posted at 00:30 by
dagbjort
 |  |  |
Halldóra Kristín November 6, 2006 10:47 AM PST
Góð pæling, þetta felur líka í sér að um 90% íslenskra barna ættu að vera að stunda orgiur, þar sem það er mjög algengt að mæður séu útivinnandi á Íslandi, soldið spes |
 |

 |  |  |
Dagbjört November 6, 2006 10:25 AM PST
Ég og Jónína sáum einmitt sama Dr. Phil þátt yfir "morgun"matnum á laugardaginn og við áttum ekki orð. Er einhver sérstakur staður þar sem börn útivinnandi mæðra koma saman og stunda þetta eða? |
 |

 |  |  |
Halldóra Kristín November 6, 2006 10:13 AM PST
Talandi um svona ,,I saw it on Oprah" sögur, að þá sá ég sjónavarpsþátt um daginn þar sem heimavinnandi húsmóðir sagði að börn útivinnandi mæðra enduðu í orgíum! hún hafði nefnilega séð það hjá Oprah...heilagur sannleikur...úff ég er svo eftir á mamma hefur alltaf unnið úti og ég er ekki enn búin að taka þátt í orgíu...á ég að skammast mín ? |
 |

 |  |  |
óska November 4, 2006 08:33 PM PST
Mér finnst ógeðslega kúl að þú hafir verið með svona marga smokka heima hjá þér!!! |
 |