|
|
 |
Sunday, November 12, 2006
Nú er ég búin að stofna nýtt blogg af því að þetta blogg var aldrei að virka en nei, þá virkar nýja bloggið ekki því það þykist vera að vinna eitthvað í því. Ég kemst inn á Eyrúnarblogg en ekki mitt. Aðeins of undarlegt til að geta verið tilviljun verð ég að segja.
Posted at 14:38 by dagbjort
Permalink
Friday, November 10, 2006
Posted at 17:08 by dagbjort
Permalink
Thursday, November 09, 2006
Þá er heimilið aldeilis orðið fínt, gardínur komnar upp og þær eru smá bleikar sem skemmir nú ekki fyrir. Lilja Rut skólasystir mín og nágranni með meiru ákvað að spara skápapláss og lána mér gardínur. Þetta er svo ofsalega fallegt að mig langar bara að eyða nóttinni í að horfa á þetta, og vera nakin inni hjá mér. Nú get ég eytt óhóflegum tíma í að vera nakin, hvenær sem tækifæri gefst. Get ekki beðið eftir að fara í sturtu á morgun og þurfa ekki að vera með handklæði á mér þegar ég fer út af klósettinu, geta klætt mig og skipt um föt í meira en eins metra fjarlægð frá klósettskálinni og bara almennt gert ósiðlega hluti hér inni án þess að nokkur geti fylgst með mér úr fjarlægð (ja eða nálægð af svölunum). -Get nú ekki sagt að ég geri mikið af ósiðlegum hlutum kannski, fer alveg eftir skilgreiningunni á ósiðleika. -Nema auðvitað að ég sé eins og Truman í Truman show. Stundum velti ég því fyrir mér hvað það væri ofsalega óspennandi þáttur ef ég væri Dagbjört í The Dagbjört show. Allt í lagi, það kemur alveg fyrir að ég lifi sápuóperu - skástrik- kvikmyndalífi en ég held það gerist of sjaldan til að þátturinn minn yrði spennandi. Ef það væri til The Dagbjört Show væri mjög gott að vita það, þá myndi ég gera meira í því að skemmta áhorfendum með dansi og söng, kjánalegum aðstæðum - eða nei annars ég upplifi sennilega alveg nóg af þeim - og bara almennum skemmtilegheitum. Þátturinn þar sem ég var engill í myndatöku hefði þá sennilega verið einn sá neyðarlegurgamanþáttur-legasti. Hver væri uppáhaldsþáttur ykkar í The Dagbjört Show svona af því sem þið hafið séð eða heyrt?
Posted at 23:32 by dagbjort
Permalink
Alltaf er hún Eva að senda mér eitthvað sniðugt
The Silent Treatment
A man and his wife were having some problems at home and were giving each other the silent treatment. Suddenly, the man realized that the next day, he would need his wife to wake him at 5:00 AM for an early morning business flight.
Not wanting to be the first to break the silence (and LOSE), he wrote on a piece of paper, "Please wake me at 5:00 AM." He left it where he knew she would find it. The next morning, the man woke up, only to discover it was 9:00 AM and he had missed his flight. Furious, he was about to go and see why his wife hadn't wakened him, when he noticed a piece of paper by the bed. The paper said, "It is 5:00 AM. Wake up." Men are not equipped for these kinds of contests.
WIFE VS. HUSBAND
A couple drove down a country road for several miles, not saying a word. An earlier discussion had led to an argument and neither of them wanted to concede their position. As they passed a barnyard of mules, goats, and pigs, the husband asked sarcastically, "Relatives of yours?" Yep," the wife replied, "in-laws
WOMEN'S REVENGE
"Cash, check or charge?" I asked, after folding items the woman wished to purchase. As she fumbled for her wallet I noticed a remote control for a television set in her purse. "So, do you always carry your TV remote?" I asked. "No," she replied, " but my husband refused to come shopping with me, and I figured this was the most evil thing I could do to him legally."
UNDERSTANDING WOMEN
(A MAN'S PERSPECTIVE)
I know I'm not going to understand women.
I'll never understand how you can take boiling hot wax, pour it onto your upper thigh, rip the hair out by the root, and still be afraid of a spider.
W O R D S
A husband read an article to his wife about how many words women use a day... 30,000 to a man's 15,000.
The wife replied, "The reason has to be because we have to repeat everything to men... The husband then turned to his wife and asked, "What?"
CREATION
A man said t o his wife one day, "I don't know how you can be so stupid and so beautiful all at the same time. " The wife responded, "Allow me to explain. God made me beautiful so you would be attracted to me; God made me stupid so I would be attracted to you!
WHO DOES WHAT
A man and his wife were having an argument about who should brew the coffee each morning. The wife said, "You should do it, because you get up first, and then we don't have to wait as long to get our coffee" The husband said, " You are in charge of cooking around here and you should do it, because that is your job, and I can just wait for my coffee." Wife replies, "No, you should do it, and besides, it is in the Bible that the man should do the coffee." Husband replies, "I can't believe that, show me." So she fetched the Bible, and opened the New Testament and showed him at the top of several pages, that it indeed it said........."HEBREWS"
Posted at 16:23 by dagbjort
Permalink
fer alveg að verða fullur. Um leið og ég finn upp e-ð sniðugt nafn á nýtt blogg þá mun ég stofna það. Er meira að segja komin svo langt að ég fór inn á bloggar.is áðan til að skoða aðeins. Hugsa að það kerfi verði fyrir valinu. Er orðin mjög þreytt á að geta ekki skoðað bloggið mitt eða að nýjustu eitt, tvö eða þrjú blogg sjáist ekki í marga daga. Einhverjar hugmyndir að nýju nafni fyrir bloggið?
Það er margt sem lætur mér finnast ég vera að eldast ansi hratt. Ég er flutt að heiman, er í háskóla og fer sjálf í Bónus. Það sem mér finnst þó vera mest ógnvekjandi - eða svona því sem næst - er að ég er komin á þann aldur að menn sem ég hrífst af eru nánast allir með hring (eða að ég gleymi hvað ég er gömul og þeir eru óviðeigandi ungir!). Litla hringi, stóra hringi, bara allir með hring. Var ég að missa af einhverju? Var einhver sérstakur tími til að panta sér góðan og sætan kærasta og það gleymdist að láta mig vita? Ég vil þá vinsamlegast fá að vita af næsta pöntunartíma. Ætli þetta sé eins og að panta tíma hjá vinsælum læknum? Þá krefst ég þess að ég fái að vita af deginum þegar byrjað verður að bóka fyrir næsta mánuð.
Posted at 02:03 by dagbjort
Permalink
Wednesday, November 08, 2006
Ég held að það geti verið að ég hafi fundið pöddu á heimili mínu í fyrsta skipti. Jú það hafa nokkrar litlar sakleysislegar flugur ratað hingað inn af rælni en þetta var e-ð óargadýr. Mjög lítið óargadýr, en af því ég veit ekki hvað þetta var þá kýs ég að kalla þetta öllum illum nöfnum. Þetta var lítið, rautt, virtist liðskipt og með fálmara. Nema þetta hafi verið útlitslega óheppið kusk sem endaði veru sína á gólfinu með því að festast á klósettpappírsrúlluna við rúmið mitt (sem ég nota til að snýta mér og þurrka tár þegar ég horfi á Grey´s uppi í rúmi - bara svona til að forðast misskilning, ég er ekki brundandi drengstauli) og þaðan rataði það/hann/hún í ruslið. Vonandi á hvaðsemþettavar enga vini eða ættingja.
Í dag svaf ég á mínu græna þegar Ómar hringdi. Það fyrsta sem hann sagði var að spyrja hvort ég væri tilbúin. Ég auðvitað hummaði ansi lengi þar til ég spurði fyrir hvað og þá var hálftími þar til ég átti að mæta upp í útvarpshús til að tala um Ástráð. a) Það er leiðinlegt að vera vakinn. b) Það er leiðinlegt að vera vakinn til að fara að gera e-ð strax. c) Það er leiðinlegt að vera vakinn til að koma upp í útvarpshús og tala við hættulegt útvarpsfólk sem lætur mann hljóma asnalega. Þetta var svo allt í lagi, þurfti ekkert að mæta á slaginu og ég hóstaði ekki nema einu sinni sem er afrek út af fyrir sig þannig að ég var ekkert vond við Ómar þegar ég kom - svo ég muni.
Það sem er enn merkilegra er að ég fann mig knúna til að flauta þrisvar sinnum á leiðinni upp í útvarpshús (ekki nýja skemmtilega flautlagið heldur var flautan á bílnum látin hljóma). Fólkið sem keyrði of hægt, svínaði og gaf ekki stefnuljós varð fyrir barðinu á flautunni minni. Svo ekki sé talað um blótið sem þau hafa sennilega ekki heyrt en örugglega vitað að hljómaði um DY-961 á þeim tíma.
Posted at 02:02 by dagbjort
Permalink
Tuesday, November 07, 2006
Ég hef grun um að nágranni minn sem deyfir ekki hljóðin í rúminu sínu við að öllum líkindum ákveðnar athafnir geri það viljandi. Hann/hún/þau vita kannski ekki að mig langar ekkert til að heyra í honum/henni/þeim á svona stundum. Ég get huggað mig við það að þetta virðist ekkert sérlega taktfast. Þetta er örugglega ömurlegt kynlíf sem verið er að stunda í nágrenni mínu.
Posted at 01:24 by dagbjort
Permalink
Friday, November 03, 2006
Í augnablikinu og fram á morgun verða 12 sinnum 20 smokkar fyrir útidyrahurðinni minni. Þannig er mál með vexti að það verða 5 Ástráðsfyrirlestrar í einu í Borgarholtsskóla og ég er með kassana sem við þurfum en ég þori ekki að geyma smokkana úti í bíl ef það skyldi frjósa í nótt. Smokkar mega ekki hitna of mikið og væntanlega þá heldur ekki frjósa - eða hvað? Vil ekki að það verði flóðbylgja af unglingaþungunum af því smokkarnir rifnuðu!
Horfði á Oprah í gær og jiminn hvað þetta var hrikalegur þáttur. Þarna var hún að spássera um Auswitsch með manni sem var haldið þar, Elie Wiesel fyrir þau ykkar sem þekkja hann. Gat haldið grátinum í mér þó nokkuð lengi en þegar voru sýndar myndir af börnum og öllu hárinu sem var rakað af öllum gat ég ekki annað en grátið. Það er svo ótrúlegt að það er til fólk sem heldur því fram að þetta hafi aldrei gerst. Ætli það trúi því í alvörunni eða segi það bara eins og fólk sem heldur stundum fram einhverju bara til að æsa mann upp eða til vera á móti skoðunum annarra?
Posted at 00:30 by dagbjort
Permalink
Thursday, November 02, 2006
eða öllu heldur myndir af þeim hanga á fánum á Laugaveginum. Getur einhver frætt mig um af hverju? Á sama tíma og ég sá þetta fyrst var verið að stofna samtök kvenna með legslímuflakk en ég efa þetta sé í tilefni af því.
Posted at 23:38 by dagbjort
Permalink
Wednesday, November 01, 2006
Í gær þíddi ég ísskápinn minn. Ég vildi að ég gæti sagt að ég hefði planað það, hugsað ,,Hm, nú er kominn tími til að ég þrífi ísskápinn minn" en þannig var það ekki. Ég fiktaði í tökkunum á ísskápnum í gærmorgun til að reyna að kæla hann meira - mjólkin farin að skemmtast óvenju snemma - en svo virðist sem ég hafi drepið hann tímabundið. Þegar ég kom heim í gærkvöldi var örlítið stöðuvatn framan við ísskápinn sem þýddi að ég þurfti að þrífa það ásamt ísskápnum á mettíma því ég átti von á Jóhanni og Jóni Ragnari. Þeir miskunnuðu sig yfir mig og buðust til að elda fyrir mig gegn því að ég þrifi. Ekki jafnrómantískt og það hljómar, þá vantaði bara stað til að borða á. En engu að síður fékk ég dýrindis fisk í gær og ágætis félagsskap yfir máltíðinni.
Er að horfa á Sex and the City þessa dagana. Ásdís Eir ber ábyrgð á því hvað ég fer alltaf seint að sofa núna. Sería eitt byrjaði ekkert sérlega vel en þetta er svona að batna. Vissi ekki að Big kæmi svona snemma fram, er fyrst núna að skilja hversu myndó hann er.
Posted at 00:27 by dagbjort
Permalink
|